Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Stórt knús og gott faðmlag
Mikið er gott að fá að sjá ykkur. Voðalega eigið þið fínar stelpur. Við sendum ykkur ástarknús og megið þið njóta aðventunar. Stórt knús og gott faðmlag
ragnheiður gunnarsdóttirr (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 28. nóv. 2008
halló sæta fjölskylda
Gaman að sjá nýju myndirnar. Mikið er maður mannalegur. Við sendum ykkur ástarknús. Hafið það alveg rosalega gott. Knús Ragnheiður og family
Ragnheiður Gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 19. apr. 2008
ástarhamingjuóskir Já lífið er yndislegt
Innilega til hamingju með lillu prinsó. Mikið er hún sæt og fín og lítil yndisleg. Júlía rúsína með lillu systur í fanginu mikið eru þær fínar. Knús ykkar Ragnheiður og co.
Ragnheiður Gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 13. apr. 2008
halló elskurnar
Gaman að sjá ykkur öll. Voðalega eruð þið sæt og fín. Mikið lítur bumbulínan vel út, voðalega fín kúla. Sendi ykkur koss og knús njótiði vorsins í Noregi og við bíðum spennt eftir að fá að sjá litla bumbubúann ykkar. ykkar Ragnheiður, 'Oli, Dagur og Arndís Dóra
Ragnheiður Gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 28. mars 2008
Halló litla sæta fjölskylda í Noregi
Það er gaman að skoða síðuna ykkar og fá þannig að fylgjast með ykkur. Við sendum knús frá okkur til ykkar og aftur til Hamingju Geir Þórarinn Snorri, Ólöf og Gunnar Ísak
Ólöf Harpa Gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 28. mars 2008
Flotta húsið
Það var gaman að sjá myndirnar og allt gengur vel hjá ykkur og tala um að búa í brekkubæ við lækinn. Kær kveðja Dóra og Gunnar.
Gunnar Kristján Gunnarsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 15. feb. 2008
til lukke
Hæ hó elskurnar mínar. Til hamingju með nýja heimilið ykkar. Spennandi finnst ykkur ekki. Megi ykkur líða vel í nýja húsinu. Með ástarkveðju Ragnheiður og co.
ragnheiður (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 30. jan. 2008
knús úr Hafnarfirðinum
Hæ elskurnar mínar. Mikið var gaman að sjá myndirnar af ykkur. 'Eg fékk bara tár í augun að heyra Júlíu syngja svona fallega. Mikið gengur vel með húsið. En hvað þetta er spennandi. Af okkur er allt gott að frétta. Arndís Dóra þrammar um íbúðina með snuð, viti menn tók snuð 1 árs. Dagur duglegur að vanda og við alltaf í brúðkaupspælingum. Knús til ykkar Mér þykir vænt um ykkur Kv. Ragnheiður og co.
ragnheiður (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 9. okt. 2007
Margar fínar myndir
Við erum pínulítið stirð í að skoða myndirnar - förum stundum einhverja hringi, en það kemur með kalda vatninu. Kveðjur úr Giljalandinu.
Ágúst Óskarsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 24. sept. 2007
Noregsferðin
Það var aldeilis gaman að koma til ykkar, fengum að sofa í svítunni, og maturinn var svo góður hjá ykkur, tala nú ekki um að sjá júlíu og hvað allt gengur vel hjá henni. Það var gaman að sjá myndirnar frá dvöl okkar í noregi. Takk fyrir Dóra og Gunnar.
Gunnar Kristján Gunnarsson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 22. sept. 2007
En og aftur
hæ aftur þetta virkaði hjá mér. Njótið þess nú að vera í Dagnmörku og svo skal ha en öl. sjáumst hress og kát. kveðja frá okkur í Hafnarfirðinum
ragnheiður gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 15. júní 2007
kveðja frá þrastarásnum.
Hæ elskurnar mínar og takk fyrir síðast. Hvernig hafið þið það? ég er að prófa hvort þetta gangi hjá mér. Gaman að lesa frá ykkur og sjá myndir við sjáumst
ragnheiður gunnarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 15. júní 2007
Kvedja fra Gautaborg
Gaman ad sja hvad thid erud buin ad koma ykkur vel fyrir. Hlakka til ad heimsaekja ykkur og thid erud alltaf velkomin til Gautaborgar :-) Sjaumst vonandi i sumar. Bestu kv. Brynja.
Brynja K. Thorarinsdottir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 14. júní 2007
hæ snúllukrúttin mín
Mikið er gaman að lesa um ykkur. Til hamingju með nýja bílinn aldeilis flott hjá ykkur. Af okkur er allt gott að frétta. Lífið gengur sinn vanagang. Nú er sól á Íslandi sem alveg prima, það lifnar svo yfir manni, skal ég segja ykkur. Ég vona að þið hafið það gott og ég heyri nú í ykkur fljótlega. Frábært að hafa þessa bloggsíðu. sjáumst og knús Ragnheiður og co.
ragnheiður Gunnarsdóttir (Óskráður), fös. 9. mars 2007
raggý night is calling
hæ elskurnar mínar. Mikið eruð þið sæt og fín ég var búin að prófa að senda ykkur línu en ég held að það hafi ekki komist á leiðarenda svo að ég vona að þið´fáið þessar línur. Af okkur er allt gott að frétta. Dúllan litla blómstrar og Dagur stóri á bráðum 6 ára afmæli jibbi skibbí. Jólin nálgast og við erum að komast í jólaskap. við hlökkum til að sjá ykkur þegar þið komið heim. Knúskveðjur og jólaknús frá okkur í þrastarásnum
ragnheiður gunnarsdóttir (Óskráður), sun. 10. des. 2006
Búinn að skrá mig
Nú verður fróðlegt að sjá hvort ég losni ekki við allt vesenið sem ég hef alltaf lent við að pára inn á síðuna ykkar. kv p
Ágúst Óskarsson, fös. 8. des. 2006
Flott íbúð
Þetta virðist vera fínasta íbúð hjá ykkur. Við höfum ekkert farið inn á bloggsíðuna nýlega og þess vegna ekki skoðað myndirnar fyrr en núna. Við hlökkum til að sjá stelpurnar á fimmtudaginn. Kveðja - Pabbi og mamma, afi og amma.
Ágúst (Óskráður), fös. 8. des. 2006
Heim í jólafrí :)
Hæ,hó Elmholtsbúar Jæja, núna fer að styttast í að Inga og Júlía Björk komi heim í jólafrí. Geir þarf að bíða aðeins lengur. Jólasveinarnir fara nú líka bráðum að tínast til byggða svo það fer að aukast fjörið. Þurfum að finna jólaball fyrir Júliu Björk. Alveg ófært að komast ekki á jólaball þegar maður kemur heim í jólafrí. Reynum að finna út úr því. Ég er allavega farin að hlakka til að fá ykkur öll heim. Sjáumst á fimmtudaginn :) Kveðja Eva
Eva Ágústsdóttir (Óskráður), fös. 8. des. 2006
Innlit / útlit
Velkominn í heiminn, þ.e. bloggheiminn. Bara stutt núna enda sumir farnir að gráta/vakna ...
JEL, fös. 24. nóv. 2006
í garðabænum er sól, logn og smá frost
halló elmholtsbúar,hvernig gengur hjá ykkur í norge er júlía björk einhvað farin að tala á norsku,ínga það er aldeilis krafur í foreldrunum og evu þau ætla að skutlast til danmerkur og noregs, það er svo skemmtilegur fréttamaður guðni í noregi sem ruv hefur samband við,hann segir frá því helsta sem er að frétta í norgi t.d.skattur fyrir að nota nagladekk, hann er mjög hress kv. gunnar
Gunnar Kristján Gunnarsson (Óskráður), fös. 24. nóv. 2006
millt í dag garðabænum
heilsun til fjölskyldunnar í elmholtinu,ínga ég og pabbi þinn vorum svolítið í sambandi í gærkveldi,hann var búinn að blogga einu sinni til ykkar,svo að ég fékk smá upplýsingar hjá honum, svona gengur þetta nú fyrir sig,nú fer að líða að afmælum, svo við erum spá í að fara á stufana og vita hvort við finnum einhvað fyrir hönnu og gunnar, eruð þið með hugmyndir gaman væri að heyra þær, það er lítið púður í fréttum frá íslandi þessa stundina, kristján er hættur að veiða hvali og á fullt af kjöti, kannski þarf hann að borða það allt sjálfur. kv. gunnar
Gunnar Kristján Gunnarsson (Óskráður), mið. 22. nóv. 2006
Hæ hér er ég
Þetta er nú alveg frábært. Myndir og allt.
Geir Þórarinn Gunnarsson (Óskráður), þri. 21. nóv. 2006
Nýjustu fréttir
Í dag fengum við góar fréttir af leikskóla málum, það lítur út fyrir að Júlía Björk fái pláss á nýjum leikskóla við Rikishospitalet í janúar. Fráaaaaaaabbbbæææærrrrttttt.
Ingibjörg Ágústsdóttir, þri. 21. nóv. 2006
Hæ aftur...
Jæja, þá er maður mættur aftur á bloggið. Var að skoða myndirnar af Selmu litlu .. er að spá í að fara og heimsækja hana ásamt ömmunni og afanum. Búin að bóka far og erum að leita að gistingu. Hvað er annars að frétta úr olíustórveldinu ? Kveðja/Eva
Eva Ágústsdóttir (Óskráður), mán. 20. nóv. 2006
Skilaboð frá Kaupmannahöfn
Já, Selma Marie dafnar vel. Vonandi komast Selma og foreldrar hennar fljótlega í heimsókn til Júlíu Bjarkar frænku sinnar í Noregi. Kærar kveðjur frá Kaupmannahöfn, Selma, Súsanne og Óskar
Óskar Ágústsson (Óskráður), mán. 20. nóv. 2006
Flott framtak
Komiði sæl ! Þett er flott framtak að setja svona í gang. Þá getið þið familíunni á einu bretti hvað á dga ykkar drífur og hvað er í gangi hverju sinni. Þá þurfið þið ekki að senda öllum tölvupóst í tíma og ótíma og enginn getur kvartað yfir að verða útundan í fréttadreifingunni. kv pabbi
Ágúst Óskarsson (Óskráður), mán. 20. nóv. 2006
Til hamingju með síðuna
Hæ hæ Inga, Geir og Júlía Björk ! Ég er sú fyrsta sem skrifar inn á bloggið og er það mikill heilur, hahahaha .. Gaman að þið skulið vera komin með svona síðu. Maður verður að reyna að vera duglegur að heimsækja síðuna ykkar. Og þið verðið að vera dugleg að birta myndir og sollis :) Annars lítið að frétta. Bara almenn ánægja með nýjasta fjölskyldumeðliminn, Selmu Marie, sem við hlökkum til að kynnast. Heyrumst betur síðar. Hafið það gott, Kv. Eva
Eva Ágústsdóttir (vinna) (Óskráður), mán. 20. nóv. 2006