18.4.2008 | 18:45
Komin heim í Borkenholmen
Sæl verið þið
Við komum heim af spítalanum á þriðjudaginn og stóra systir er mjög dugleg að hjálpa til að skipta á bleiu. Það er mjög gott að hafa pabba Geir heima núna og hjálpa til meðan maður er að komast upp í rútínu með brjóstagjöfina og annað.
Veðrið er mjög gott þessa dagana, sólskin og hlýindi í veðurkortunum, svo maður verður nú að fara komast í vagninn og fara í göngutúra. Júlía æfir sig á hjólinu næstum á hverjum degi og verður sífellt betri.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.