24.4.2007 | 19:35
Sumar og sól
Hæ hæ öllsömun
Nýjustu fréttir úr Elmholtinu eru að Júlía Björk fékk reiðhjól á dögunum. Hún er rosalega ánægð og montinn með nýja hjólið sitt. Við erum búin að fara í tvo hjólreiðatúra og hafa þeir gengið mjög vel. Hún þorir ekki að hjóla mjög hratt og er mjög varkár og er farin að læra að bremsa ( mjög mikilvægt). Júlía og nýja vinkonan hennar hún Margrethe hjóluðu saman úti í gær, sjá mynd.
Fjölskyldan er farin að hlakka til að koma heim á klakann og fá skyr og flatkökur.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Hæ hæ Elmholtsbúar ....
Ég vil byrja á að óska Júlíu Björk til hamingju með nýja hjólið .. alveg rosaflott. Auðvitað er Júlía dugleg að hjóla og fer varlega .. og að sjálfsögðu með hjálm. Gaman að hún skuli vera búin að eignast vinkonu :)
Lítið að frétta héðan af skerinu þessa dagana ... pólitikin háværari en venjulega þar sem kosningarnar nálgast. Það vorar líka meir og meir sem betur fer ... og það sést á páskaliljunum í garðinum sem maður sér nánast vaxa á hverjum degi.
Við hérna heima erum farin að hlakka til að fá ykkur heim þó þið stoppið ekki lengi. Sjáumst á sunnudaginn
Kær kveðja í bili, Eva
Eva (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.